Ísafjörður: Fjöldasöngur í Hömrum tileinkaður Sigríði Ragnars 31. okt. kl. 17

Sigríður Ragnarsdóttir fyrrv. skólastjóri Tónís.

Næsti fjöldasöngur í TónlistarskólaÍsafjarðar verður helgaður minningu Sigríðar Ragnarsdóttur skólastjóra (31. október 1949 – 27. ágúst 2023), í Hömrum á afmælisdegi hennar þriðjudaginn 31. okt. kl. 17. Sungin verða lög sem gjarnan urðu fyrir valinu þegar hún settist við píanóið.

… bestu blómin gróa í brjóstum sem að geta fundið til …

.

Velkomin í Hamra. Aðgangur ókeypis.

DEILA