Hamrar: Svava Rún og Mikolaj – hádegistónleikar 1. nóv. kl. 12

Svava Rún Steingrímsdóttir. Myndir:Tónís.

Svava Rún Steingrímsdóttir og Mikolaj Frach eru næst í röðinni í hádegistónleikaröð Tónlistarskólans á Ísafirði á afmælisári, í Hömrum miðvikudaginn 1. nóvember kl. 12. Svava Rún tók rytmískt miðpróf hjá Bjarneyju Ingibjörgu Gunnlaugsdóttur og hélt þá dásamlega tónleika sem mörgum eru í fersku minni, en síðan þá hefur hún stundað nám við Listaháskólann.

Hádegistónleikarnir hafa slegið í gegn, það er upplagt að sækja sér upplyftingu og nærandi stund í Tónlistarskólann í hádegishléi. Tónleikarnir standa aðeins í 25 mínútur og mörgum er því í lófa lagið að nýta sér þessa skemmtilegu viðburði með Ísfirðingunum okkar.

Verið hjartanlega velkomin – aðgangur ókeypis!

Mikolaj Frach.

DEILA