Mikolaj, Maksymilian, Nikodem og Iwona – tónleikar í Hömrum – ókeypis aðgangur

Nikodem, Mikolaj, Maksymilian og Frach ásamt Geigei.

Ísfirðingarnir og bræðurnir Mikolaj píanóleikari, Maksymilian og Nikodem Frach, fiðluleikarar, halda tónleika í Hömrum fimmtudaginn 28. september kl. 19.30. Móðir þeirra, Iwona, leikur með Nikodem.

Piltarnir eru í framhaldsnámi í Póllandi, en Mikolaj kennir við Tónlistarskólann tímabundið í vetur. Þeir bræður hafa sýnt heimabænum sínum, Ísafirði, einstaka ræktarsemi og hafa með reglulegu millibili gefið Ísfirðingum kost á að fylgjast með framgangi námsins, spennandi!

Missið ekki af þessum frábæra viðburði. Aðgangur ókeypis!

DEILA