Tónleikar í Dalbæ um verslunarmannahelgina

Tónleikar verða í Dalbæ á Snæfjallaströnd laugardaginn 5. ágúst kl. 16-18 um verslunarmannahelgina. Meðal þeirra sem fram koma eru Berta Dröfn Ómarsdóttir sópran og Svanur Vilbergsson gítarleikari. Kraftgalli mun opna lagakistu sína og trúbadorinn Gísli Jens Guðmundsson mætir með gítarinn.

Kaffi og  meðlæti innifalið.

Frá og með 15. júlí og til 8. ágúst er rekin ferðaþjónusta í Dalbæ á Snæfjallaströnd á vegum Snjáfjallaseturs og Sögumiðlunar, netfang olafur@sogumidlun.is. Opið er kl. 10-20, alla daga vikunnar. Bergljót Aðalsteinsdóttir (gsm 690 4893) og Agnes Hjaltalín Andradóttir (8671102) sjá um ferðaþjónustuna.

DEILA