Listviðburður í Hömrum 2. sept. kl 16, söngur – fiðla og píanó

Ísfirðingarnir Kolbeinn Jón Ketilsson, Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir, Hjörleifur Valsson ásamt hinum norska píanóleikara Thormod Rønning Kvam halda tónleika í Hömrum laugardaginn 2. september kl 16 (ATH KLUKKAN FJÖGUR).

Þau fara vítt og breitt um tónlistargarðinn: íslensk, þýsk, norsk, ungversk, amerísk og ítölsk tónlist. Einleikur á píanó, fiðlu, einsöngur og svo leika þau og syngja öll saman.

Létt og skemmtilegt prógramm! Miðaverð: 3500.- (posi á staðnumn)

DEILA