ALDREI AFTUR HIROSÍMA OG NAGASAKI: KERTAFLEYTING Á NAKASAKI-DAGINN

Frá kertafleytingu á Ísafirði. Mynd: Bryndís Friðgeirsdóttir.

Fyrir 78 árum, 6. og 9. ágúst 1945, vörpuðu Bandaríkjamenn kjarnorkusprengjum á borgirnar Hírósíma og Nagasaki í Japan. Frá árinu 1985 hafa Íslendingar minnst fórnarlamba þessara skelfilegu árása með kertafleytingu og áréttað kröfuna um heim án kjarnorkuvopna.
Vestfirðir eru þar engin undantekning og verður fórnarlambanna minnst  á Ísafirði klukkan 22:00 á Nagasaki-daginn 9. ágúst.

Komið verður saman á Ísafirði við Neðstakaupstað á Suðurtanga þar sem Harpa Henrýsdóttir flytur ávarp. Mun fólk sameinast í yfirlýsingunni Aldrei aftur Hirósíma og Nagasaki! 

Kerti verður til sölu á staðnum og rennur féð til Samstarfshóps friðarhreyfinga. Borga má í reiðufé á staðnum en einnig verður millifærsla möguleg.

Vonast er til að sjá sem flesta.

DEILA