Veðrið í júní í Árneshreppi

Hér kemur yfirlit yfir veðrið frá veðurstöðinni í Litlu-Ávík í Árneshreppi sem veðurathugunarmaðurinn Jón G. Guðjónsson hefur sett inn á vefsíðu sína litlihjalli.it.is.

Mæligögn:

Úrkoman mældist 52,2 mm.

Úrkomu sem varð vart en mældist ekki var í 2 daga.

Þurrir dagar voru 14.

Mestur hiti mældist þann 16: +20.1 stig.

Minnstur hiti mældist þann 22: +0,2 stig.

Meðalhiti mánaðarins var +9,1 stig. (í Júní 2022: 7,0 stig.)

Meðalhiti við jörð var +5,70 stig. (í júní 2022: +4,37 stig.)

Yfirlit dagar eða vikur:

Mjög hlítt var í veðri frá 11 og fram til 17. Enn mjög kalt var síðustu fjóra daga mánaðarins, sem haustveður væri. Norðlæg vindátt var með súld og þokulofti.

Jörð var mjög þurr í mánuðinum þegar hlýindin voru, jörð var allt að því skrælnuð og þar sem sandtún voru brann gras á túnum. Grasið varð brúnt á litinn.

DEILA