Ísafjörður: harmónikuball á sunndaginn

Frá harmónikuballi í Edinborg í fyrra.

Harmonikkuball verður haldið í Edinborgarhúsinu á Ísafirði sunnudaginn 9. júlí  kl. 15 til 17.

Nú er um að gera að fá sér snúning segir í tilkynningu um ballið. Baldur Geirmunds spilar fyrir dansi og spiluð verða gömlu góðu stuðlögin.

Kaffiveitingar og frítt inn.

Það eru Rauði krossinn og Menningarmiðstöðin Edinborg sem standa fyrir ballinu. 

DEILA