Dýrafjarðadagar: ekki athugasemd við vínveitingaleyfi

Frá Dýrafjarðardögum 2019. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar gerir ekki athugasemd við veitingu tækifærisleyfis til Dýrafjarðardaga dagana 15. og 16. júlí nk. Áformað er að halda dansleik í Félagsheimilinu og kvöldvöku á Víkingasvæðinu eða reiðhöllinni ef veður verður óhagstætt.

Af sama tilefni hefur veitingastaðurinn Hamona sótt um tækifærisleyfi þ.e. tímabundið áfengisleyfi fyrir bjór og léttvín með matnum dagana 14. til 17. júní. Bæjarráðið veitti sams konar umsögn og gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins.

Sýslumaðurinn á Vestfjörðum veitir leyfin að fenginni umsögn umsagnaraðila.

DEILA