Birna Hjaltalín Pálsdóttir 90 ára

Afmælisboð

Birna Hjaltalín Pálsdóttir 90 ára

Sunnudaginn 9. júlí n.k. ætlum við að fagna 90 ára afmæli elsku mömmu, tengdamömmu, ömmu og langömmu. Hún er búin að taka daginn frá en fær ekkert að vita hvað dagurinn ber í skauti sér.

Í tilefni dagsins þá verður opið hús frá kl. 14:00 til 17:00 í Félagsheimili Bolungarvíkur þar sem á boðstólnum verður kaffisopi og með því.

Það myndi gleðja hana mikið og okkur öll ef þið sæjuð ykkur fært að kíkja til hennar þegar hún fagnar þessum tímamótum.

Margir hafa spurt hvernig sé hægt að gleðja hana í tilefni dagsins. Hún óskar vinsamlega eftir því að henni verði ekki færðar gjafir en það myndi gleðja hana mikið ef þið vilduð leggja henni lið í að safna upp í lyftu í Slysavarnarhúsið í Bolungarvík. Hún hefur því stofnað söfunarreikning.  Þeir sem vilja leggja henni lið eru beðnir um að merkja innleggið með orðinu „Lyfta“, innleggsupplýsingar eru eftirfarandi og framlagið er frjálst.

Kennitala: 090733-2149 Birna Hjaltalín Pálsdóttir

Reikningsnúmer er 0511-26-031265

Okkur hlakkar mikið til að hitta ykkur öll

og fagna með elsku mömmu, tengdamömmu, ömmu og langömmu.

Hlý kveðja

Ingu fjölskylda, Sossa og fjölskylda, Hrólli og fjölskylda, Magga og fjölskylda

Pálína og fjölskylda, Haukur og fjölskylda, Tóta fjölskylda og allir fylgifiskar

DEILA