Suðureyri: 6 íbúðir í byggingu

Mynd af af fyrstu steypu við Aðalgötu 17-19. Myndir: aðsendar.

Fyrirtækið Nostalgía ehf á Suðureyri hefur hafið byggingu á íbúðarhúsum í þorpinu. Hér eru myndir af fyrstu steypu í vor við Aðalgötu 17-19 og svo Brekkustíg 5 . Framkvæmdir við Eyrargötu 11 hefjast síðar í sumar. Samtals eru því sex íbúðir í byggingu á Suðureyri núna fyrir utan tvö frístundahús við Höfðastíg sem voru tilbúin í maí. Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri Nostalgíu ehf segir að Íbúum à Suðureyri hafi fjölgað nokkuð á undanförnum árum eða úr 252 árið 2017 í 299 í byrjun þessa árs, 2023 og vonast Elías til þess að aukið húsnæði styðja við þessa jákvæðu þróun enn frekar.

Framkvæmdir við Brekkustíg.

DEILA