Tónlistarskóli Ísafjarðar fær gjöf frá Kiwanisklúbbnum Básum á Ísafirði

Á myndinni eru Kristján Guðjónsson frá Kiwanisklúbbnum, Sara Hrund útibússtjóri og Bergþór skólastjóri. Myndir: tonis.is

 Kiwanisklúbburinn Básar á Ísafirði ákvað að veita Tónlistarskóla Ísafjarðar styrk til að kaupa gott rafmagnspíanó á Suðureyri. Það kom sér aldeilis vel að sögn Bergþórs Pálssonar, skólastjóra.

„Við höfum haft aðstöðu í Grunnskólanum á Suðureyri, en eins og kunnugt er, greindist mygla í skólahúsnæðinu og síðan hefur verið kennt víða í plássinu. Nú voru góð ráð dýr. Sara Hrund Signýjardóttir útibússtjóri Tónlistarskólans hefur staðið í ströngu, en hún er hörð af sér stelpan, sér ekki vandamál, bara lausnir, og kenndi í svefnherberginu sínu um tíma. Sem betur fer hljóp þó sr. Fjölnir Ásbjörnsson undir bagga með okkur, eins og oft áður og veitti okkur leyfi til kennslu í kirkjunni.“

En þar sem öll hljóðfæri voru í Grunnskólanum, var ekki hægt að nota þau, svo að þetta hljóðfæri kom á hárréttum tíma. Það er líka létt að flytja það, t.d. þegar tónleikar eru. Við færum Kiwanisklúbbnum Básum bestu þakkir fyrir auðsýndan vinarhug segir Bergþór Pálsson.

Júlía í flaututíma hjá Söru Hrund og Bergþór spilar með þeim á hljómborðið.

DEILA