Fræðadvöl í Grímshúsi á Ísafirði

Stofnun Ólafs Ragnars Grímssonar um málefni norðurslóða hefur auglýst eftir umsóknum um fræðadvöl í Grímshúsi á Ísafirði. Stofnuninni er ætlað að verða vettvangur fyrir alþjóðlega samvinnu um málefni norðurslóða, aðgerðir gegn loftslagsbreytingum, sjálfbærni og aðra tengda þætti. 

Fræðadvölin í Grímshúsi á Ísafirði er unnin í samvinnu við Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Akureyri, Háskóla Íslands, Háskólasetur Vestfjarða, Kerecis og Hningborð Norðurslóða.

Fræðadvölinni er ætlað að skapa erlendum og íslenskum vísindamönnum, sérfræðingum, fræðimönnum, rithöfundum og fleirum kost á því að dvelja í 2-6 vikur í Grímshúsi, Túngötu 3 á Ísafirði þar sem fjölskylda Ólafs Ragnars bjó á sínum tíma. Fræðadvölin sem á ensku heitir Grímsson Fellows hefur verið auglýst sérstaklega í alþjóðlegu neti samstarfsaðila.

Vísindamenn og sérfræðingar á sviðum Norðurslóða, loftslagsmála, umhverfisfræða, náttúrufræða, félagsvísinda,
heilbrigðisvísinda, sjálfbærni, hreinnar orku, sagnfræða sem og rithöfundar geta sótt um að dvelja í húsinu á grundvelli
alþjóðlegra auglýsinga.
Ólafur Ragnar Grímsson eignaðist helming hússins fyrir nokkrum árum og bíður æskuheimili sitt, tvær hæðir og ris, sem dvalarstað fræðimanna. Áskilið er að viðkomandi haldi fyrirlestur eða taki þátt í sérstökum samræðufundum; ýmist á Ísafirði eða við háskólana í Reykjavík og Akureyri; ýmist á meðal dvölinni stendur eða henni lokinni.
Áformað er að 2-4 fræðimenn dvelji í húsinu á hverju ári.
Umsóknarfrestur fyrir 2023 til 2025 er 1. júlí.

Nánari upplýsingar um umsóknarferlið: Grímsson Fellows (arcticcircle.org)

DEILA