Erlendum ríkisborgurum fjölgar

Alls voru 66.823 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. mars sl. og fjölgaði þeim um 2.238 einstaklinga frá 1. desember 2022 eða um 3,5%.

Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 24,9% frá 1. desember 2022 og voru í byrjun mánaðarins alls 2.829 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá, sem er fjölgun um 564 einstaklinga á tímabilinu.

Sömuleiðis hefur orðið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Rúmeníu eða um 6,4% sem eru 231 einstaklingar á umræddu tímabili og eru nú 3.854 einstaklingar með rúmenskt ríkisfang búsettir hér á landi.  

Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 527 einstaklinga eða um 2,3% og eru pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi nú 23.823 samtals.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 375 einstaklinga.

DEILA