ADHD í Edinborgarhúsinu

Hljómsveitin ADHD heldur tónleika í Edinborgarhúsinu, þriðjudaginn 11. apríl kl. 20:30.

Þriðjudagur eftir páska er mögulega þreyttasti dagur ársins á Ísafirði eftir skíðaviku og Aldrei fór ég suður.

En þá er upplagt að lyfta sér upp með ADHD. Tilvalið fyrir eftirlegukindur, þreytta og þunna að skella sér á tónleika.

Hljómsveitin ADHD gaf út sína áttundu plötu, ADHD 8, í fyrra. Hljómsveitin fylgdi útgáfunni eftir með útgáfutónleikum á Húrra í Reykjavík og tónleikaferð um Evrópu.

Nú, hálfu ári síðar, ætla þeir félagar loksins í reisu um Ísland.

Hljómsveitin ADHD hefur verið starfrækt í meir en áratug, gefið út 8 plötur og ferðast um Evrópu þvera og endilanga í hljómleikaferðum undanfarin 10 ár.

Hljómsveitina skipa Óskar Guðjónsson sem spilar á alls kyns saxófóna, Ómar Guðjónsson sem leikur á gítar, fetilgítar og bassa, Tómas Jónsson sem leikur á ýmis konar orgel, hljóðgervla og píanó og Magnús Trygvason Eliassen sem leikur á trommur og slagverk.

DEILA