Uppskrift vikunnar – Fiskur í frábærri sósu!

Eftir mikið kjötát um hátíðarnar finnst mér gott að hafa mikinn fisk í janúar. Þessi uppskrift er einföld en einstaklega góð. Vona að þið séuð sammála.

Uppskrift fyrir 4-5

Innihald:

  • 1/2 líter súrmjólk
  • 1 bolli majónes
  • 1 tsk karrý
  • 1/2 tsk túrmerik
  • 1 tsk aromat
  • 1 tsk season all
  • 1 niðurskorið epli
  • 1/4 dós brytjaður ananas
  • 800 g beinlaus ýsa/þorskur/lúða
  • rifinn ostur

Aðferð:

Hitið ofninn í 180°. Skerið fiskinn í stóra bita og setjið í eldfast mót. Setjið epli og ananas yfir fiskinn. Hrærið súrmjólk, majónesi, karrý, túrmerik, aromat og season all saman og hellið yfir fiskinn, eplið og ananasinn. Stráið rifnum osti yfir og setjið í ofninn í 20 mínútur. Berið fram með hrísgrjónum eða soðnum kartöflum og salati.

Verði ykkur að góðu!

Halla Lúthersdóttir.

DEILA