Ísafjörður: Mikolaj, Maksymilian og Nikodem Frach – tónleikar í Hömrum – ókeypis aðgangur

Bræðurnir hæfileikaríku og eftirlæti Ísfirðinga, Mikolaj (sem sló í gegn um daginn í Eldborg með Sinfóníuhljómsveit Íslands í „Klassíkinni okkar“), Maksymilian og Nikodem halda tónleika á bernskuslóðunum nk. þriðjudag 1. nóv. kl. 20. Með þeim kemur einnig fram mamma þeirra Iwona Frach og sérstakur gestur á tónleikunum verður Mariola Cieniawa-Puchala prófessor við Tónlistarakademíuna í Kraká.
Eftir tónleika verður boðið upp á kaffi.
Aðgangur er ókeypis og það eru frjáls framlög í hljóðfærasjóð bræðranna.

Á dagskránni eru verk eftir Chopin, Schubert og Tsjækovskí.

Þetta verður mikil hátíð og við hlökkum mikið til!

DEILA