Ólympíuhlaupið 2022 fyrir skólana í landinu

Ólympíuhlaupið er árlegur viðburður og er fastur liður í skólastarfi margra grunnskóla á landinu. Ólympíuhlaupið er liður í Íþróttaviku Evrópu og er hlaupið formlega opnað í einum skóla ár hvert. Að þessu sinni verður hlaupið opnað í Grunnskóla Grindavíkur miðvikudaginn 7. september nk.

Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.

Nemendur geta valið á milli vegalengdanna 2,5 km, 5 km og 10 km. Að hlaupinu loknu fær hver þátttakandi og hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá árangri.

Fyrst og fremst er lögð áhersla á holla hreyfingu og þátttöku sem flestra. Mjólkursamsalan (MS) hefur frá upphafi styrkt útgáfu viðurkenningarskjala á myndarlegan hátt og samstarfsaðili að þessu verkefni er eins og áður Íþrótta- og heilsufræðingafélag Íslands.

Allir skólar sem ljúka þátttöku í hlaupinu fyrir 10. október og skila inn upplýsingum til ÍSÍ eiga að auki möguleika á þremur útdráttarverðlaunum sem í boði eru. Hver þeirra þriggja skóla sem dregnir eru út fær 100.000 króna inneign í Altis, en Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu.

Gert er ráð fyrir því að allir skólar hafi lokið hlaupinu fyrir árslok.

DEILA