16 eldislaxar í Mjólká í Arnarfirði

Bráðabirgðaniðurstöður DNA greininga á þrjátíu og tveimur löxum sem Fiskistofa veiddi í Mjólká í Arnarfirði í ágúst síðastliðnum sýna að helmingur laxanna, sextán alls,  reyndust vera eldislaxar.

Vísbendingar eru um  að eldislaxarnir séu frá Haganesi í Arnarfirði en gat kom á kví á því eldissvæði í ágúst 2021.

Endurkeyra þarf DNA greininguna til að geta staðfest bráðabirgðaniðurstöðurnar og í framhaldi af því verður hægt að rekja upruna eldislaxanna nánar.

DEILA