Hafró við rækjurannsóknir og merkingar á þorski

Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson

Nú stendur yfir könnun á útbreiðslu og magn rækju í úthafinu. Alls verða teknar 86 stöðvar í stofnmælingunni.

Úthafsrækjusvæðið, fyrir norðan og norðaustan landið, hefur verið kannað árlega með sambærilegum hætti frá árinu 1987 að undanskildum árunum 2019 og 2021. Gögnin eru notuð til að meta stofnstærð og veita ráðgjöf um veiðar á úthafsrækju.

Í þessum leiðangri verður einnig haldið áfram með merkingar á þorski en átak hófst í þorskmerkingum árið 2019. Frá þeim tíma hafa um 17 þúsund þorskar verið merktir og hafa merki úr tæplega 700 þorskum skilað sér til Hafrannsóknastofnunar.

DEILA