Báta og hlunnindasýning á Reykhólum


Á Báta og hlunnindasýningunni á Reykhólum er yfirlit um hlunnindanytjar við Breiðafjörð og í Breiðafjarðareyjum.

Einnig er fróðleikur um dýra- og fuglalíf.

Á bátasafninu eru einkum súðbyrðingar með breiðfirsku lagi, einnig er þar nokkuð stórt safn gamalla bátavéla, sumar sjaldgæfar.

Bátasafnið hefur jafnframt verið verkstæði þar sem unnið hefur verið að bátasmíði og viðgerðum, þar hafa líka verið haldin námskeið í bátaviðgerðum.

Á miðvikudögum og fimmtudögum í sumar verður Hafliði Aðalsteinsson bátasmiður þar við vinnu og gefst gestum sýningarinnar kostur á að fylgjast með bátaviðgerðum. Þannig er þetta að nokkru leyti lifandi safn.

Það er vel ómaksins virði að staldra við og skoða Báta- og hlunnindasýninguna.

Sýningin er opin alla daga vikunnar fram í miðjan ágúst, milli kl. 11 og 18.

DEILA