Sjálfsafgreiðsla í greiðsludreifingu hjá innheimtumönnum ríkissjóðs

Ný sjálfsafgreiðsluþjónusta á Ísland.is gerir notendum kleift að gera greiðsluáætlun og dreifa greiðslum opinberra gjalda á þeim stað og tíma sem þeim hentar.

Sem dæmi geta notendur sjálfir gert áætlanir um greiðslu flestra gjalda, svo sem skatta og önnur gjöld, undir fjármálum á Ísland.is.

Um mánaðamótin verða niðurstöður álagningar einstaklinga 2022, vegna tekna 2021, birtar á þjónustuvef Skattsins þar sem skattaálagningu síðasta árs er sjálfkrafa dreift á 7 eða 3 gjalddaga.

Vilji notendur breyta þessari dreifingu, er með einföldum hætti hægt að nota nýju þjónustuna til að gera greiðsluáætlun og lækka mánaðarlegar greiðslur eftir greiðslugetu.

Fjármál hafa verið í þróun á Mínum síðum Ísland.is fyrir einstaklinga og fyrirtæki með það að markmiði að auka þægindi og gagnsæi upplýsinga. Notendur geta séð sundurliðun skulda og/eða inneigna hjá ríkissjóði og stofnunum sem og hreyfingar, greiðsluseðla og kvittanir. Nú um mánaðamótin bætast greiðsluáætlanir við það yfirlit og geta einstaklingar þá einnig dreift skuldum sínum sjálfir en stefnt er að því að fyrirtæki geti gert slíkt hið sama síðar á árinu.

Á ári hverju eru gerðar á bilinu 17.000 – 20.000 greiðsluáætlanir og hefur ferlið í för með sér talsverða handavinnu, bæði fyrir notendur sem og starfsmenn innheimtumanna ríkissjóðs. Með þessari nýju þjónustu er dregið verulega úr þeirri handavinnu og áætlunin gerð sjálfkrafa og birt bæði í pósthólfinu sem og Mínum síðum á Ísland.is.

Verkefnið er samstarfsverkefni Fjársýslu ríkisins, Skattsins, innheimtumanna ríkissjóðs og Stafræns Íslands, einingar innan fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem vinnur að eflingu stafrænnar þjónustu.

DEILA