Byggðastofnun: forstjórinn til Þjóðskrár

Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, hefur verið settur forstjóri Þjóðskrár Íslands frá 1. febrúar til sex mánaða. Hann leysir af Margréti Hauksdóttur, forstjóra Þjóðskrár, sem fer í sex mánaða námsleyfi.

Arnar Már Elíasson, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar, mun á sama tímabili leysa Aðalstein af sem forstjóri Byggðastofnunar.

Aðalsteinn hefur verið forstjóri Byggðastofnunar síðustu 20 árin.

DEILA