Plast og hlutir tengdir sjávarútvegi eru algengasta ruslið í sjónum

Umhverfisstofnun hóf vöktun rusls á ströndum sumarið 2016, samkvæmt aðferðafræði og leiðbeiningum frá OSPAR (samningur um verndun hafrýmis Norðaustur-Atlantshafsins). 

Á hverri strönd fyrir fram afmarkað svæði vaktað. Tilgangur vöktunarinnar er að finna uppruna rusls á ströndum, hvaða flokkar rusls safnast mest fyrir, meta magn sem safnast fyrir yfir ákveðið tímabil og að fjarlægja ruslið. Með vöktuninni uppfyllir Ísland hluta af aðgerðaráætlun OSPAR, um að draga úr skaðsemi úrgangs í hafi og á ströndum.

Umhverfisstofnun sér í flestum tilfellum um framkvæmd vöktunarinnar með aðstoð viðkomandi sveitarfélags og/eða landeigenda.

Ströndin Ýsuhvammur í nágrenni Reyðarfjarðar hefur nú bæst í hóp vaktaðra stranda og er sú eina á Austurlandi. Samið hefur verið við Náttúrustofu Austurlands um að vakta ströndina þrisvar sinnum á ári. 

Þannig eru sjö strandir nú komnar í vöktun Umhverfistofnunar en þær eru: 

  • Surtsey
  • Bakkavík á Seltjarnarnesi
  • Búðavík á Snæfellsnesi
  • Rauðasandur
  • Rekavík bak Höfn á Hornströndum
  • Víkur á Skagaströnd
  • Ýsuhvammur, Reyðarfirði 
DEILA