Netnótan – Tónlistarskólar landsins láta ljós sitt skína

Oliver Rähni í Bolungavík við píanóið.

Á Íslandi eru tæplega  90 tónlistarskólar starfandi með 15 þúsund nemendur. Flest allir þessir skólar taka þátt í Netnótunni, nýjum tónlistarþáttum, sem unnir eru í samstarfi við Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Samtaka tónlistarskólastjóra. Þættirnir verða sýndir á N4 en þar gefst kostur á að skyggnast inn í starfsemi tónlistarskólanna, grasrót tónlistarsköpunar í landinu.

Í fyrsta þætti , sunnudagskvöldið 13. júní,  láta tónlistarskólanemendur á Bolungarvík, Ísafirði og Hólmavík ljós sitt skína.


Frá árinu 2010 hefur Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskóla landsins, verið haldin árlega með pompi og prakt. Árið 2020 átti hátíðin 10 ára afmæli en lítið varð úr hátíðarhöldum vegna Covid.  Í Ljósi aðstæðna brugðust tónlistarskólar landsins við með síma og Ipada að vopni og tóku upp eigin tónlistaratriði. Saman eru þessi myndbönd orðin að Netnótunni, þriggja þátta sjónvarpsseríu sem sýnd verður á N4.

Fyrsti þáttur fer í loftið  þann 13. júní. Í þáttunum eru myndbönd sem hver þátttökuskóli útbjó heima í héraði púslað saman og sér leikarinn Vilhjálmur Bragason um að kynna atriðin.  Eins og sést í Netnótunni þá  er starf tónlistarskólanna mjög fjölbreytt, tónlistarnemendur eru á öllum aldri og á öllum stigum tónlistarnámsins.

Myndböndin birtast á vefsíðu KÍ og FB síðu Nótunnar á sama tíma og hver sjónvarpsþáttur er sýndur, auk þess sem þau verða aðgengileg á heimasíðu N4 og í N4 safninu í  Sjónvarpi Símans.

Frá tónlistarskólanum á Ísafirði. Myndir: aðsendar.
DEILA