Níu taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi

Níu frambjóðendur munu taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi sem fram fer dagana 16. og 19. júní næstkomandi. Í prófkjörinu velja þeir sem taka þátt 4 frambjóðendur.

Alls bárust átta framboð fyrir lok tilskilins framboðsfrests og voru þau öll úrskurðuð gild. Að auki bætti kjörnefnd við einu framboði líkt og prófkjörsreglur heimila.

Um er að ræða fjórar konur og fimm karla. Meðalaldur frambjóðenda er 37 ár. Umræddir frambjóðendur eru:

  • Bergþóra Ingþórsdóttir 24 ára, nemi, Akranesi
  • Bjarni Pétur Marel Jónasson 21 árs, starfsmaður Eyrar, Ísafirði
  • Guðrún Sigríður Ágústsdóttir 47 ára, ráðgjafi, Reykjavík
  • Haraldur Benediktsson 55 ára, alþingismaður og bóndi, Hvalfjarðarsveit
  • Magnús Magnússon 48 ára, sóknaprestur, Húnaþingi vestra
  • Sigríður Elín Sigurðardóttir, 20 ára, sjúkraflutningakona og nemi, Akranesi
  • Teitur Björn Einarsson, 41 árs, lögmaður, Skagafirði
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir 33 ára, ráðherra, Kópavogi
  • Örvar Már Marteinsson 45 ára, skipstjóri, Ólafsvík

Nánari upplýsingar um frambjóðendur má finna hér: https://xd.is/profkjor-i-nordvesturkjordaemi/

DEILA