Hjólabókin um Skaftafellssýslur er komin út

Hjá Vestfirska forlaginu er komin út Hjólabókin um Skaftafellssýslur en bókin er sú sjötta í röðinni í þessum vinsæla bókaflokki.

Í frétt frá Vestfirska forlaginu segir að Hjólabækurnar þeirra Smára og Nínu séu löngu orðnar klassískar.
Með Skaftafellssýslum er kominn liðlega helmingur af landinu í hjólabækur.
Í þeim öllum er geysilega mikið af upplýsandi litmyndum.

Í bókunum er lýst hjólaleiðum, auðveldum og erfiðum, sem eiga það sameiginlegt að þær liggja í hring. Loka má hringnum á einum degi. Hagnýtar upplýsingar um hverja leið fylgja. Hjólabækurnar eru einsdæmi á Íslandi. Gott ef ekki í öllum heimi! Þær eru fyrir alla sem áhuga hafa á landinu okkar.

DEILA