Chatchai Phothiya úr Golfklúbbi Ísafjarðar setti stórglæsilegt vallarmet á Litleyrarvelli á Bíldudal um sunnudaginn þegar Arnarlaxmótið fór fram. Chatchai lék á 62 höggum, eða átta höggum undir pari. Fyrra vallarmetið var 68 högg. Arnarlaxmótið er eitt af fjölmörgum mótum í Vestfirsku sjávarútvegsmótaröðinni. Um síðustu helgi fóru fram tvö mót í mótaröðinni og voru úrslit sem hér segir:
Oddamótið fór fram á Vesturbotnsvelli við Patreksfjörð laugardaginn 1. júlí.
Úrslit í höggleik án forgjafar í karlaflokki:
- sæti Chatchai Phothiya GÍ á 73 höggum
- sæti Janusz Pawel Duszak GÍ á 76 höggum
- sæti Ásgeir Óli Kristjánsson GÍ á 79 höggum
Úrslit í höggleik án forgjafar í kvennaflokki:
- sæti Bjarney Guðmundsdóttir GÍ á 97 höggum
- sæti Björg Sæmundsdóttir GP á 98 höggum
- sæti Sigrún Sigurðardóttir GÁ á 101 höggi
Arnarlaxmótið fór fram á Litlueyrarvelli við Bíldudal sunnudaginn 1. júlí.
Úrslit í höggleik án forgjafar:
- sæti Chatchai Phothiya GÍ á 62 höggum
- sæti Stefán Óli Magnússon GÍ á 73 höggum (hafði betur gegn Karli Inga í bráðabana)
- sæti Karl Ingi Vilbergsson GÍ á 73 höggum
Úrslit í höggleik án forgjafar í kvennaflokki
- sæti Björg Sæmundsdóttir GP á 79 höggum
- sæti Bjarney Guðmundsdóttir GÍ á 82 höggum
- sæti Lamduan Seejaem GBO á 84 höggum