Staðfest að um skæða fuglaflensu er að ræða

Nú hefur verið staðfest að fuglaflensuveirur sem greinst hafa að undanförnu hér á landi eru af hinu skæða afbrigði H5N1 sem geisar í nágrannalöndum okkar um þessar mundir. Í gildi er efsta stig viðbúnaðar vegna fuglaflensu.

Smithætta fyrir alifugla er mikil og brýnt að fuglaeigendur gæti ýtrustu sóttvarna. Fólk er enn hvatt til að tilkynna Matvælastofnun um dauða villta fugla sem það finnur. Um veika villta fugla skal tilkynna til viðkomandi sveitarfélags.

Tilvísunarrannsóknarstofa OIE, FLI í Þýskalandi, hefur haft veirur úr hænum á Skeiðum og heiðagæs í Hornafirði til nánari rannsóknar og svar barst frá henni í dag sem staðfesti að um væri að ræða sama alvarlega meinvirka afbrigði fuglaflensuveirunnar H5N1 sem geisað hefur í Evrópu undanfarna mánuði. Að öllum líkindum eru þær veirur sem hafa greinst í öðrum fuglum hér á landi af sömu gerð, þar sem þetta er það afbrigði sem langmest er um í Evrópu um þessar mundir.

Þegar fuglaflensan greindist í heimilishænum hækkaði Matvælastofnun viðbúnaðarstig þar sem stofnunin taldi allar líkur á að um hið skæða afbrigði væri að ræða. Þessi niðurstaða rannsókna FLI staðfestir því það mat og rennir stoðum undir að rétt hafi verið að virkja viðbragðsáætlun stofnunarinnar.

Smithætta fyrir alifugla og aðra fugla í haldi er mikil og Matvælastofnun brýnir enn og aftur fyrir fuglaeigendum að framfylgja þeim reglum sem í gildi eru.

DEILA