Sjómenn slíta viðræðum við SFS – Miðstjórn ASÍ styður sjómenn

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við sjómenn í kjaraviðræðum þeirra við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Í ályktun ASÍ segir að framganga útgerðarinnar í viðræðum við sjómenn vekji furðu og sé með öllu óásættanleg.

Þann 6. september slitu sjómenn kjaraviðræðum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hjá ríkissáttasemjara.

„Sýnt var að vilji stórútgerðarinnar til að finna lausn á kjaradeilunni var ekki fyrir hendi. Sérhverri tillögu sjómanna var svarað með gagntilboðum sem voru með öllu óaðgengileg. Steininn tók úr þegar útgerðin lýsti sig ekki tilbúna til að auka framlag í lífeyrissjóð nema sá kostnaður yrði að fullu bættur með skertum kjörum sjómanna. Minnt skal á að krafan um aukið framlag í lífeyrissjóð felur það eitt í sér að sjómenn njóti þess sama og samið hefur verið um við aðra hópa. Vart getur það talist undrunarefni að sjómenn neiti að taka á sig meiri kostnað en ávinningur þeirra yrði með undirritun samningsins.“

Sjómenn hafa nú verið samningslausir í 19 mánuði.

Miðstjórn ASÍ telur þá stöðu mála ólíðandi og krefst þess að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi láti af þvermóðsku og óbilgirni í viðræðum við sjómenn. „Álögur á sjávarútveginn eru ekki slíkar að sú framganga geti með nokkru móti talist réttlætanleg, hvað þá eðlileg.“ segir í ályktuninni.

DEILA