Sjálf í sviðsljósi

Út er komin hjá Háskólaútgáfunni bókin Sjálf í sviðsljósi. Bókin fjallar um Ingibjörgu Steinsdóttur konu Ingólfs Jónssonar sem var fyrstur til að gegna starfi bæjarstjóra á Ísafirði á árunum eftir 1930. Í kynningu á bókinni segir:

„Ingibjörg Steinsdóttir er ekki hér. Hún er ekki lengur til sem lifandi vera en minjar um ævi hennar liggja hins vegar eins og reki í margs konar ,,textum“.

Sögur af Ingibjörgu hafa verið skrifaðar og endurskrifaðar, sagðar og endursagðar, lesnar og túlkaðar á margvíslegan hátt.

Dótturdóttir og nafna Ingibjargar hitti ömmu sína aldrei í lifanda lífi en ólst upp við litríkar sögur af henni og stöðugan samanburð, bæði undir jákvæðum og neikvæðum formerkjum. Í þessari bók freistar höfundur þess að komast að því hver Ingibjörg Steinsdóttir var en jafnframt að gefa henni rödd í sögunni.“

DEILA