Uppskrift vikunnar: Ostauppskrift

Þó vonandi verði ekki mikið um partýstand núna um Verslunarmannahelgina ætla ég að deila þessari æðislegu ídýfuuppskrift með ykkur. Þessi ídýfa er góð með öllu finnst mér.

Hráefni:

1 msk ólífuolía

1 laukur

1 rautt chili

1 rauð paprika

2 msk smátt saxað kóríander

1 poki rifinn ostur

125 g hreinn rjómaostur

450 g Cheddar ostur

1 – 2 dl rjómi (jafnvel meiri ef ykkur finnst ídýfan of þykk)

½ – 1 tsk cayenne pipar

salt og pipar

1 poki Doritos

Aðferð:

  1.  Hitið olíu á pönnu eða í potti.
  2.  Saxið lauk, chili og papriku smátt og
    steikið upp úr olíunni í 1 – 2 mínútur eða þar til laukurinn verður glær.
  3.  Rífið niður cheddar ostinn og bætið út í pottinn ásamt öðrum hráefnum.
  4.  Leyfið ostinum að bráðna í rólegheitum, bætið vökvanum saman við í nokkrum
    pörtum. Byrjið á því að setja minna en meira.
  5.  Hrærið stöðugt í sósunni og smakkið ykkur til með salti, pipar og cayenne pipar.
  6.  Þegar þið eruð ánægð með þykktina þá getið þið borið sósuna fram með góðu
    snakki.

Verði ykkur að góðu.

Halla Lúrhersdóttir.
DEILA