Rúmum 380 milljónum króna úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra- Rúmlega ein milljón til Vestfjarða

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur úthlutað framlögum úr Framkvæmdasjóði aldraðra til endurbóta og viðhaldsverkefna á hjúkrunarheimilum víðsvegar um landið. Stærsta úthlutunin, rúmar 117 milljónir króna, fer til endurbóta á dvalarheimilinu Höfða á Akranesi sem miða að því að bæta aðbúnað og breyta fjölbýlum í einbýli.

Alls eru að þessu sinni veitt framlög til 36 verkefna sem ýmist felast í nauðsynlegum viðhaldsverkefnum eða aðgerðum sem ætlað er að bæta aðbúnað íbúa á hjúkrunarheimilunum eða auka öryggi þeirra. Önnur stærsta úthlutunin, 52 milljónir króna, fer til endurbóta á 40 baðherbergjum á Hrafnistu við Hraunvang í Hafnarfirði. Sem dæmi um fleiri verkefni má nefna endurnýjun á lyftum og lyftubúnaði, endurbætur á brunaviðvörunarkerfum, bætt sóttvarnahólfun, bætt aðgengi og ýmis fleiri mikilvæg viðhaldsverkefn.

Þau verkefni sem fengu úthlutun á Vestfjörðum voru öll á Ísafirði.

Þjónustumiðstöð ‐ Nauðsynlegar endurbætur á þjónusturými á Hlíf fékk úthlutað 468 þús. , endurbætur á baðherbergi dagdvalar á 1. hæð Hlífar 1 fékk 610 þús. og endurbætur á dagdeild aldraðra 230 þús.

DEILA