Trúmál: 74% landsmanna kristnir

Reykhólakirkja. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Í nýju fréttabréfi Þjóðskrár Íslands kemur fram að 74% landsmanna voru þann 1. maí skráðir í kristna söfnuði. Utan trúfélaga voru 26.525 og 53.973 voru með ótilgreinda skráningu. Alls eru það 22% landsmanna sem falla undir ofangreindar tvær skráningar.

 

Þjóðkirkjan er langfjölmennust með 230.741 manns innan sinna raða. Kaþólska kirkjan er næstfjölmennust með 14.653 meðlimi. Fríkirkjurnar í Reykjavík og Hafnarfirði koma næstar.

 

Samtals eru 272.003 skráðir í kristin trúfélög sem eru um 74% landsmanna. Þar af eru 230.741 í Þjóðkirkjunni, sem gerir 63% af landsmönnum. Ásatrúarfélagið með 4.870 eru fjölmennasta trúfélagið sem ekki er kristið og í Siðmennt eru 3.660 manns.

Niðurstaðan er að nærri 80% eru skráðir í tilgreind trúfélög og að Þjóðkirkjan ber höfuð og herðar yfir önnur trúfélög. Utan trúfélaga eru um 7%.

Þjóðkirkjan 230.741
Kaþólska kirkjan   14.653
Fríkirkjan í Reykjavík   10.005
Fríkirkjan í Hafnarfirði     7.266
Ásatrúarfélagið     4.870
Siðmennt     3.660
Óháði söfnuðurinn     3.236
Hvítasunnukirkjan á Íslandi     2.096
Zuism     1.131
Búddistafélag Íslands     1.114
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan        747
Kirkja sjöunda dags aðventista á Ísland       623
Félag múslima á Íslandi       622
Vottar Jehóva       611
Fríkirkjan Vegurinn       486
Smárakirkja       421
Serbneska rétttrúnaðarkirkjan       378
Menningarsetur múslima á Íslandi       377
Bahá’í samfélag       352
Stofnun Múslima á Íslandi       317
DEILA