Öryrkjabandalagið: orð skulu standa!

Frá aðalfundi Öryrkjabandalagsins.

Öryrkjabandalag Íslands hefur sent frá sér samþykkt um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Stjórn ÖBÍ segir fjárlagafrumvarpið eftir aðra umræðu vera alvarleg svik við gefin loforð.

Orð skulu standa!

Hvar er virðingin?

Stjórn ÖBÍ lítur á afgreiðslu annarrar umræðu um fjárlagafrumvarpið sem alvarleg svik við gefin loforð.

Stjórn ÖBÍ krefst þess að þeir 4 milljarðar sem lofað var að settir yrðu í almannatryggingakerfið til að hefja leiðréttingar á kjörum öryrkja skili sér án tafar.

Stjórn ÖBÍ lýsir eftir því „góða samráði “ sem ríkisstjórnin er stöðugt að hreykja sér af.

Óskertur örorkulífeyrir er einungis 238.594 kr. á mánuði.

DEILA