Menningarsjóður vestfirskrar æsku styrkir ungmenni

Menningarsjóðurinn styrkir ungmenni sem geta ekki stundað sitt nám í heimabyggð.

Eins og undanfarin ár verða veittir styrkir úr Menningarsjóði vestfirskrar æsku til framhaldsnáms sem vestfirsk ungmenni geta ekki stundað í heimabyggð sinni. Að öðru jöfnu njóta eftirtaldir forgangs um styrk úr sjóðnum:

1. Ungmenni sem misst hafa fyrirvinnu, föður eða móður.
2. Einstæðar mæður.
3. Konur, meðan fullt launajafnrétti er ekki í raun.
4. Ef engar umsóknir eru frá Vestfjörðum, koma umsóknir Vestfirðinga búsettum annars staðar til greina.

Félagssvæði Vestfirðingafélagsins er Ísafjarðarsýslur, Ísafjörður, Stranda- og Barðastrandasýslur.

Umsóknir skulu sendar fyrir lok júlí mánaðar 2018 til Menningarsjóðs vestfirskrar æsku c/o Haukur Hannibalsson, Digranesheiði 34, 200 Kópavogur og skal umsögn fylgja frá skólastjóra og/eða öðrum sem þekkja viðkomandi nemanda, efni hans og aðstæður. Einnig má senda umsóknir á netfangið: haukurhannibalsson@simnet.is
Á síðasta ári voru veittir styrkir að upphæð 450þúsund til þriggja ungmenna frá Vestfjörðum.

Í stjórn sjóðsins eru: Haukur Hannibalsson, Ásdís Sæmundsdóttir og Sigurður H. Magnússon.

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA