Málefnaleg umræða um sjávarútveg á Ísafirði

Góð mæting var á fund sem haldinn var á þriðjudaginn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði á vegum verkefnisins Auðlindarinnar okkar. Einnig fylgdist fjöldi manns með fundinum í streymi á netinu og var góð þátttaka í umræðum bæði í sal og í gegnum streymi.

Fundarstjóri fundarins á Ísafirði var Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar. Rebekka Hilmarsdóttir sérfræðingur á skrifstofu sjávarútvegs og fyrrum bæjarstjóri Vesturbyggðar hélt erindi um verkefnið Auðlindin okkar og vinnu starfshópanna AðgengiSamfélagTækifæri og Umgengni.

Auk þeirra fjölmörgu sem tjáðu sig úr sal tóku þátt í fundinum þau Benedikt Árnason ráðuneytisstjóri matvælaráðuneytis, Catherine Chambers, rannsóknarstjóri Háskólaseturs Vestfjarða og fulltrúi í hópnum Samfélag, Halla Jónsdótti úr starfshópnum Umgengni og framkvæmdastjóri Optitog, Katrín Júlíusdóttir úr starfshópnum Samfélag og fyrrum ráðherra og Óskar Veigu Óskarsson úr starfshópnum Tækifæri og sölustjóri Marel.

Fundurinn var sá fyrsti af fjórum sem haldnir verða á landsbyggðinni, næstu fundir verða haldnir á Valhöll á Eskifirði 1. Nóvember, Akóges-salnum í Vestmannaeyjum 8. nóvember og Hofi, Akureyri 15. nóvember. Öll þau sem láta sig málefni auðlindarinnar og sjávarútvegsins varða eru hvött til að fylgjast með fundunum, hægt verður að senda inn athugasemdir og fyrirspurnir í streymi.

DEILA