Tveir Ísfirðingar eru meðal umsækjenda um stöðu hafnarstjóra Faxaflóahafna. Það eru þeir Gísli Halldór Halldórsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði og Gunnar Tryggvason, verkfræðingur og starfandi hafnarstjóri Faxaflóahafna.
Alls sóttu sjö um stöðuna og eru hinir fimm eftirtaldir:
- Elías Pétursson, fyrrverandi bæjarstjóri
- Haraldur Sverrisson, fyrrverandi bæjarstjóri
- Jón Valgeir Björnsson, deildarstjóri
- Karl Óttar Pétursson, lögmaður
- Kristín Björg Árnadóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs