Þjóðkirkjan: helgihald í kirkjum frá 17. maí

Kirkjan í Unaðsdal. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Frá því er sagt á vef Vestfjarðaprófastdæmis að samkvæmt bréfi biskups frá 17. apríl megi hefja opið helgihald í kirkjum landsins frá og með 17. maí. Ekki mega samt fleiri en 50 manns vera í kirkjurýminu og skal gæta þess að ávallt séu tveir metrar á milli kirkjugesta.

Ekki er gert ráð fyrir neinum altarisgöngum eða öðrum helgisiðum þar sem krafist er nándar og nærveru.

Heimilt að ferma 1-2 börn í einu en ekki er ætlast til þess að prestur taki í hönd fermingarbarni né leggi hönd á höfuð þess svo sem siður hefur verið. Þá yrði ekki gengið til altaris.

Í fermingarveislum skulu að hámarki vera 50 manns og skal vera tveggja metra fjarlægð milli fólks, sem ekki býr á sama heimili. Samkvæmt ráðleggingum frá sóttvarnarlækni er ekki æskilegt að gamalt fólk eða fólk með undirliggjandi sjúkdóma taki þátt í mannamótum eða fjölmennum samkomum.

DEILA