Í ferðablaði New York Post er ítarleg umfjöllun um Árneshrepp á Ströndum. Tilefni umfjöllunarinnar er frumsýning Hollywoodmyndarinnar Justice League sem var tekin upp að hluta í hreppnum, fyrst og fremst í Djúpuvík. Kvikmyndin skartar súperstjörnunni Ben Affleck í hlutverki Batman en í myndinni er litríkt gallerý ofurhetja og nægir að nefna auk Batmans þau Súperman, Ofurkonuna og Hvell-Geira.
Djúpuvík m.a. lýst sem einhverju af öðrum heimi. Þar segir að svæðið hafi fljótt heillað leikstjórann og framleiðandann sem tökustaður. „Hér er engin þörf fyrir tæknibrellur, bara gamaldags kvikmyndatöku til að ná hinu náttúrulega umhverfi,“ er m.a. haft eftir framleiðandanum Jim Rowe um tökurnar á Íslandi.
Í grein New York Post er þess getið að íbúar Árneshrepps séu um fimmtíu og sagt frá sögu síldarævintýrisins í Djúpuvík. Útitökurnar voru teknar á staðnum en innitökurnar voru teknar í kvikmyndaveri í Bretlandi þar sem búið var að endurgera verksmiðjuna að ákveðnu leyti.
smari@bb.is