Aflaverðmæti íslenskra skipa í maímánuði nam tæpum 10,7 milljörðum króna, eða 11,3% minna en í maí 2016. Þó var fiskafli skipanna í mánuðinum 27% meiri en árið áður, eða tæp 138 þúsund tonn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands. Ljóst er að lægra fiskverð veldur þessum samdrætti þegar rýnt er í tölur stofunnar, en verðmæti þorskaflans nam tæpum fimm milljörðum og dróst saman um 0,9%, þrátt fyrir að magnið hafi aukist um 19,9%.
Samdráttur varð þá einnig í verðmæti annarra tegunda. Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 23,4% og verðmæti uppsjávarafla dróst saman um 24,8%.
Enn fremur nam verðmæti botnfiskaflans rúmum 8 milljörðum, sem er 4,7% samdráttur miðað við maí 2016.
Á tólf mánaða tímabili frá júní 2016 til maí 2017 nam aflaverðmæti íslenskra skipa 114 milljörðum króna, sem er 19,7% samdráttur miðað við sama tímabil ári fyrr, en þá var verðmætið rúmir 142 milljarðar króna. Þarna munar 28 milljörðum króna.
smari@bb.is