Vegagerðin: þungatakmörkunum aflétt

Frá Steingrímsfjarðarheiði í síðasta mánuði. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Þeim sérstöku ásþungatakmörkunum sem gilt hafa á Vestfjarðavegi 60 frá Dalsmynni að Flókalundi, á Djúpvegi 61, Drangsnesvegi 645, Þingeyrarvegi 622, Flateyrarvegi 64, Súgandafjarðarvegi 65 verður aflétt á morgun, föstudaginn 3. maí 2024 kl. 08:00.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Takmarkanir gilda áfram á Innstrandavegi 68 í Strandasýslu, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63 og á Vestfjarðavegi 60 um Dynjandisheiði.

DEILA