Mast: auglýsir endurnýjun á rekstrarleyfi Arctic Fish í Patreksfirði og Tálknafirði

Matvælastofnun auglýsti í gær tillögu að endurnýjun á rekstrarleyfi Arctic Sea Farm í Patreks- og Tálknafirði en fyrirtækið hefur verið með rekstrarleyfi fyrir 7.800 tonna hámarkslífmassa af laxi í Patreks- og Tálknafirði (FE-1145) sem var gefið út 27. ágúst 2019 og rann út 27. ágúst 2023. Arctic Sea Farm sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi dags. 27. desember 2022.

Málið hefur tafst vegna þess að í Strandsvæðaskipulagi fyrir Vestfjarða sem unnið var í fyrra er gerð krafa um að vinna áhættumat siglinga áður en leyfi verða gefin út eða endurnýjuð. Áhættumatið geta varðað s.s. endanlega staðsetningu sjókvía, fyrirkomulag festinga, merkingar sjókvía og skermingu vinnulýsingar.

óljóst hver átti að vinna áhættumat siglinga og hvernig

Matvælastofnun segir í tilkynningu um auglýsinguna að þar sem um er að ræða nýjar kröfur sem gerðar voru til rekstrarleyfishafa og óljóst var hver og hvernig skyldi framkvæma áhættumat um siglingaöryggi tafðist sú vinna vegna eldissvæða Arctic Sea Farm í Patreks- og Tálknafirði.

Eftir ákvörðun stjórnvalda um að fyrirtækin skyldu sjálf framkvæma áhættumatið lagði Arctic Sea Farm fram drög að áhættumati um siglingaöryggi fyrir Kvígindisdal og Hvannadal í Patreks- og Tálknafirði, þann 29. október 2023.

Verkfræðistofan Efla vann áhættumatið fyrir Arctic Fish. Þar eru gerðar athugasemdir við eldissvæðið í Kvígindisdal í Patreksfirði og að það sé að hluta til innan hvíts ljósgeisla frá Ólafsvita. „Nýting þess hluta reitsins á Kvígindisdalur í Patreksfirði sem fellur utan hvíta ljósgeirans frá Ólafsvita ógnar ekki siglingaöryggi. Með því að nota mótvægisaðgerðirnar minnkar siglingaáhættan í Patreksfirði og Tálknafirði. Varúðarsvæði upp á 100m er talið hæfilegt.“ Ef reglum um merkingar sé fylgt telst siglingaöryggi þeirra báta sem almennt sigla um þetta svæði ekki ógnað.

Í tillöguna setti Matvælastofnun það ákvæði að óheimilt væri að hafa eldisbúnað á eldisvæðinu við Kvígindisdal í Patreksfirði og við Hvannadal í Tálknafirði fyrr en staðfest áhættumat um siglingaöryggi liggur fyrir. Þó er heimilt að hafa eldisbúnað við Hvannadal þar til búið er að ala og slátra þeim fiski sem er nú þegar í sjókvíum á eldisvæðinu.

Von er á því að staðfest áhættumat siglinga liggi fyrir innan skamms.

Gildistími rekstrarleyfisins er til 16 ára.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar á Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 1. desember 2023.

DEILA