Veðrið í Árneshreppi í september

Alhvítt var í Örkinni að morgni 21 september

Eftirfarandi yfirlit yfir veðrið frá veðurstöðinni í Litlu-Ávík er tekið saman af Jóni S Guðjónssyni.

Mæligögn:

Úrkoman mældist 103,4 mm.(í september 2022: 45,4 mm.)

Úrkomu sem varð vart en mældist ekki var í 4 daga.

Þurrir dagar voru 8.

Mestur hiti mældist þann 2: +15,5 stig.

Minnstur hiti mældist þann 22: +1,0 stig.

Meðalhiti mánaðarins var 7,7 stig. (í september  2022: +7,3 stig.)

Meðalhiti við jörð var +3,90 stig. (í september 2022: +2,72 stig.)

Yfirlit dagar eða vikur:

Fyrstu átta daga mánaðarins voru suðlægar vindáttir SV eða S, oft stinningskaldi eða allhvass og hlýtt í veðri. Síðan hægviðri með hlýju veðri yfir daginn, en svalara á nóttinni. Norðan allhvass eða hvassviðri var 17 til 19, með rigningu. Norðlægar vindáttir voru út mánuðinn með vætu.

Aðeins varð flekkótt í fjöllum í fyrsta sinn í haust þann 20 og alhvítt var að morgni 21.

Örkin sem er 634 M er mælikvarði fyrir snjóhulu í fjöllum á veðurstöðinni í Litlu-Ávík.

DEILA