Þröstur Leó heiðursgestur PIFF

Þröstur Leó Gunnarsson verður heiðursgestur kvikmyndahátíðarinnar Pigeon International Film Festival í ár. Þröstur Leó sem er frá Bíldudal er einn af þekktustu leikurum Íslands en hann hefur starfað jöfnum höndum í kvikmyndum og leikhúsi, bæði í Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu. Þröstur Leó hefur leikið í á sjöunda tug sjónvarps- og kvikmyndaverkefna og leikstýrt fjórum. Hann leikur í vestfirsku myndinni Leitin að Auði – eða The Search for Auður – eftir Lýð Árnason sem sýnd verður á PIFF í ár en hún var tekin að stærstum hluta upp á Vestfjörðum.

Þröstur Leó hefur fengið fjölmörg verðlaun fyrir verk sín, m.a. Grímuverðlaunin fyrir hlutverk sín í Killer Joe, Ökutímum og Koddamanninum, Edduverðlaunin fyrir Nóa albínóa og Brúðgumann, og Stefaníustjakann fyrir störf sín að leiklist árið 2009. Auk þess sem hann hefur hlotið mikið lof fyrir hlutverk sitt í í svörtu kómedíunni Á ferð með mömmu og var valinn besti leikari í aðalhlutverki fyrir það hlutverk sitt á ítölsku kvikmyndahátíðinni BIF&ST í vor. Myndin er tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í ár sem veitt verða í lok mánaðar.

Þröstur Leó mun sitja fyrir svörum og spjalla um feril sinn á sérstökum viðburði á Dokkunni föstudaginn 13. október. Eins og með aðra viðburði á vegum PIFF verður frítt inn og allir velkomnir. Hátíðin stendur yfir dagana 12. – 15. október.

Nánari upplýsingar á facebook-síðu PIFF.

DEILA