Ísafjörður: leikskólinn Tangi skilinn frá Sólborg

Frá 1. ágúst sl. var leikskólinn Tangi skilinn frá Sólborg. Við það myndast aukinn launakostnaður upp á 4,1 m.kr. og leggur bæjaráð fram sérstakan viðauka við fjárhagsáætlun til þess að mæta viðbótarkostnaðinum. Ástæðan er að stöðugildi stuðnings var flutt af Eyrarskjól og á Tanga en ekki var hægt að mæta því með lækkun á kostaði við Eyrarskjól þar sem þörf myndaðist þar á viðbótarstöðugildi vegna stuðnings. Er kostnaðinum mætt með því að ganga á ófyrirséðan launakostnað í fjárhagsáætlun.

Áhrif viðaukans er því enginn á rekstrarniðurstöðu Ísafjarðarbæjar.

Fimm ára börn á Ísafirði sameinast á leikskólanum Tanga sem er staðsettur í húsnæði Tónlistarskóla Ísafjarðar.

DEILA