Vestri: afsláttarkjör af flugi á úrslitaleikinn

Meistaraflokkur Vestra í knattspyrnu spilar til úrslita um laust sæti í Bestu deild karla laugardaginn 30.september næstkomandi. Mikilvægt er að sem flestir stuðningsmenn Vestra sjái sér fært að koma á leikinn og hvetja liðið til sigurs.

Icelandair býður stuðningsfólki sem hyggst fljúga suður á leikinn 20% afslátt af Economy Standard & Flex fargjaldi með kóðanum VESTRI. Tilboðið gildir til miðnættis í dag (þriðjudag). Ferðatímabilið er 29.september – 2.október, báðir meðtaldir.

Athugið að afsláttarkóða er hægt að nota samhliða hefðbundnum Loftbrúarafslætti.

Áfram Vestri!

DEILA