Söngur, fiðla og píanó í Hömrum á Ísafirði

Ísfirðingarnir Kolbeinn Jón Ketilsson, Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir, Hjörleifur Valsson ásamt hinum norska píanóleikara Thormod Rønning Kvam halda tónleika í Hömrum laugardaginn 2. september kl. 16.

Þau fara vítt og breitt um tónlistargarðinn: íslensk, þýsk, norsk, ungversk, amerísk og ítölsk tónlist. Einleikur á píanó, fiðlu, einsöngur og svo leika þau og syngja öll saman.

DEILA