Saga Hnífsdals kemur í í dag

Bókin Saga Hnífsdals kemur formlega út í dag, fimmtudaginn 31. ágúst og verður útgáfunni fagnað með hófi í Félagsheimilinu í Hnífsdal kl. 17 sama dag. Saga Hnífsdals er saga fólksins þar frá landnámi til sameiningar við Ísafjörð árið 1971. Í bókinni er lýst sviptingasamri jarðasögu, sögu útgerðar sem þróaðist og myndaði stórt þorp með 500 íbúum, hörðum stéttaátökum, stofnun félagasamtaka og uppbyggingar gróskumikils mannlífs og menningar.

Höfundur bókarinnar, Kristján Pálsson, er uppalinn á Ísafirði. Hann hefur starfað sem sjómaður og útgerðarmaður, sem sveitarstjóri á Suðureyri og sem bæjarstjóri í Ólafsvík og í Njarðvík. Þá sat hann á Alþingi í átta ár. Eftir langan feril í útgerð og stjórnmálum lauk Kristján meistaraprófi í sagnfræði við Háskóla Íslands.

Boðið verður upp á léttar veitingar og bókin mun fást á sérstökum útgáfuhófskjörum.

DEILA