Ísafjörður: tónlistarskólinn settur í gær

Bergþór Pálsson skólastjóri setti skólann og minntist Sigríðar Ragnarsdóttur fv. skólastjóra sem lést á sunnudaginn.

Fjölmenni var í gær á skólasetningu Tónlistarskóla Ísafjarðar. Bergþór Pálsson skólastjóri minntist Sigríðar Ragnarsdóttur fyrrverandi skólastjóra sem lést í fyrradag. Einnig fór hann yfir það helsta sem er framundan í vetur, má þar nefna Heimilistóna, opið hús og þátttöku skólans í Fiðlaranum á þakinu.

Aron Ottó Jóhannsson og Bea Joó fluttu Nótt eftir Árna Thorsteinson í minningu Sigríðar Ragnarsdóttur. Mikolaj Ólafur Frach, nýr kennari við skólann, spilaði Ballöðu nr. 1 í g-moll eftir Chopin.

Í lokin var hraustlega tekið undir í Í faðmi fjalla blárra og gestir gæddu sér á pönnukökum.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá í dag, þriðjudaginn 29. ágúst.

Skóladagatal Tónlisatarskólans er HÉR og viðburðadagatalið HÉR.

DEILA